Fimmta útkall Hafdísar á stuttum tíma

7. júlí 2010

Hafdís, nýr Atlantic 75 bátur björgunarsveitarinnar Geisla á Fáskrúðsfirði hefur ekki legið aðgerðalaus síðan hann kom til sveitarinnar fyrir nokkrum vikum. Geislamenn eru nú á leið í sitt fimmta útkall á Hafdísinni en þeir freista þess að ná í mannlausan bát sem er á reki á milli Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar. Báturinn, sem losnaði frá í ausandi vatnsveðri og roki í nótt, er í brimi og liggur undir skemmdum.



Til baka


 

Flýtileiðir


Leit


Breyta um leturstærð