14. júlí 2010
Laugardaginn 17. júlí fer fram rannsókn á leitarsviði og fer rannsóknin fram í Brynjudal, Hvalfirði. Rannsóknin gengur út á að kanna hvert leitarsvið er við mismunandi aðstæður og hvernig það rýmar við regndansinn sem leitarmenn nota til að meta leitarsvið mismunandi svæða. Nú bráð vantar mannskap til að taka þátt, en áætlað er að þetta taki um fjórar klukkustundir. Ræst verður út í verkefnið milli 09:00-10:00 og 14:00-15:00. Þátttakendur þurfa að taka með sér þann búnað sem þeir nota í leitum, auk þess sem þeir þurfa að hafa með sér áttavita og GPS. Ef viðkomandi á ekki GPS getur hann fengið það lánað á staðnum. Fólk er hvatt til að skrá sig á eftirfarandi link.
Til baka