23. júlí 2010
Hálendisvakt björgunarsveita hefur verið í gangi frá 25.júní. Nú hafa 14 björgunarsveitir þegar tekið eina vakt og 16 vaktir eftir. Hálendisvaktinni lýkur sunnudaginn 15.ágúst. Hálendisvaktin er skipulögð þannig að sveitir taka að sér að vakta ákveðið svæði þannig að fjórar vaktir eru í gangi hverju sinni á; Hveravöllum, Landmannalaugum, Nýjadal og Drekagili í Öskju. Á hverri vakt eru a.m.k. 3 sjálfboðaliðar björgunarsveita á björgunarsveitabíl. Nokkarar sveitir hafa líka gert úr þessu stærri ferð og í sumum tilfellum allt að 20 björgunarsveitarmenn til staðar frá einni sveit.
Nú í dag mun Björgunarsveitin Ársól frá Reyðarfirði senda hóp á Hveravelli og Hjálparsveitin Dalbjörg úr Eyjafirði sendir hóp í Nýjadal. Hjálparsveit skáta Reykjavík mun svo senda hópa í Landmannalaugar og Drekagil í Öskju.
Hlutverk björgunarsveitanna er að vera til staðar til þessa að sinna leit og björgun. Einnig eru sveitir að leiðbeina og aðstoða ferðamenn sem lenda í vandræðum. Sveitirnar eru líka að kanna ástand vega ofl fyrir Vegagerðina.
Í sumar hefur starf sveitanna gengið vel en ekki hafa nein stór mál komið upp. Aðstoða hefur þurft ferðamenn sem lent hafa í vandræðum á íslenskum fjallvegum. Meðfylgjandi mynd er frá Björgunarsveitinni Geisla á Fáskrúðsfirði sem eru að aðstoða vélhjólamann við Hvannalindir.
Til baka