Sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi fjallar um íslenskar björgunarsveitir í Öldungadeild Bandaríkjanna

26. júlí 2010

Þann 22. júlí síðastliðinn kom sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi Luis Arreaga fyrir öldungadeild bandaríska þingsins.  Meðal þess sem að hann sagði í ávarpi sínu til þingsins var að Ísland tæki mikinn þátt í alþjóðlegri neyðaraðstoð og minntist hann sérstaklega á  okkar hlut  þegar  hamfarir  hafa átt sér stað.  Íslenskar björgunarsveitir hafa sent Alþjóðasveit sína til aðstoðar við jarðskjálftana  í Tyrklandi, Alsír, Marokko og núna síðast fór sveitin til Haiti.  Íslenska alþjóðasveitin var ein af fyrstu sveitunum sem kom til Haiti og var hún kominn innan 24 stunda frá því að skjálftinn reið yfir.  Segir hann í ávarpi sínu að Bandaríkin séu sérstaklega þakklát Íslendingum fyrir að flytja Bandaríska ríkisborgara /þegna frá Haíti eftir hörmungarnar. Hægt er að lesa ávarp sendiherrans hér



Til baka


 

Flýtileiðir


Leit


Breyta um leturstærð