29. júlí 2010
Mikill viðbúnaður verður nú um helgina hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.
Sjö björgunarsveitir munu taka að sér gæslustörf í Landeyjahöfn en gert er ráð fyrir mikilli umferð á svæðinu. Björgunarsveitir verða einnig með öryggisgæslu um borð í Herjólfi en hann siglir 6- 8 ferðir á sólarhring yfir verslunarmannahelgina Einnig verður Atlantic 75 björgunarbátur Björgunarsveitarinnar Suðurnes og áhöfn í Bakkafjöru á vöktum fram á mánudagskvöld. Sveitir sem sinna gæslustörfum eru Flugbjörgunarsveitin Hellu,Björg Eyrarbakka, Mannbjörg Þorlákshöfn, Hjálparsveit skáta Hveragerði, Árborg og Sigurvon í Sandgerði.
Að auki eru björgunarsveitir víðsvegar um land að störfum í kringum viðburði tengdum þessari miklu ferðahelgi.
Hálendisvakt SL er einnig í fullum gangi og hefur verið töluvert að gera hjá þeim sveitum sem eru upp á hálendinu vegna vatnavaxta í ám. Fjórar björgunarsveitir eru staðsettar á hálendinu yfir sumartímann.
Til baka