Ferðamennska

Það er staðreynd að 75% slysa eru svokölluð heima- og frítímaslys. Þess vegna hefur Slysavarnafélagið Landsbjörg lagt ríka áherslu á slysavarnir í þessum málaflokki. Ekki er hægt að sinna öllum slysavörnum í einu og hefur félagið því undanfarin ár einbeitt sér að slysavörnum í ferðamennsku ásamt slysum á heimilum.
 
Árlega verður fjöldi slysa tengdur ferðalögum. Þegar haldið er í ferðalag þarf að huga að mörgum þáttum. Mikilvægast er að láta alltaf vita af ferðum sínum hvort sem farið er í stuttar, langar, erfiðar eða léttar ferðir. Þegar farið er í lengri ferðir ætti alltaf að liggja fyrir ferðaáætlun hjá ættingjum eða vinum með upplýsingum um hvernær áætlað er að láta vita af sér. Þetta auðveldar og flýtir mikið fyrir ef eitthvað kemur upp á og leita þarf að fólki.
 
Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur gefið út mikið af efni um öryggi á ferðalögum og í frítíma. Hér til hliðar er að finna nánari umfjöllun um einstaka þætti í ferðamennsku og hægt að nálgast alla bæklinga, veggspjöld og gátlista á pdf formi.




 

Flýtileiðir


Leit


Breyta um leturstærð