
Slysavarnafélagið Landsbjörg og félagseiningar þess hafa í mörg ár stuðlað að aukinni notkun almennings á endurskinsmerkjum, m.a. með því að gefa endurskinsmerki. Með notkun endurskinsmerkja er hinn almenni vegfarandi að auka öryggi sitt til muna, hann sést fimm sinnum fyrr þegar hann lendir í ljósgeisla bíls miðað við þann sem er ekki með endurskin. Best er að velja fatnað sem er með endurskini á. Ef endurskin er ekki til staðar á fatnaðinum þarf að hafa laus endurskinsmerki á sér. Endurskinsmerkin þurfa að vera þannig staðsett að ljósgeisli frá bíl falli á þau hvort sem bíllinn kemur á móti eða aftan að vegfaranda.
Félagið er með eftirtaldar tegundir af endurskinsmerkjum sem félagseiningar geta keypt hjá félaginu á 70 krónur stykkið.
Fígúrumerki Límd á föt og þola þvott við 40°C Töskumerki
Jafnframt er hægt að fá bókamerki þar sem fjallað er um mikilvægi endurskins til að afhenda með endurskinsmerkjunum.

Mun fleiri endurskinsvörur eru til og getur slysavarnasviðið séð um að útvega þær fyrir einingar félagsins og láta merkja þær með logoi félagsins eða logoi einingarinnar. Merking á vesti tekur um 1-2 vikur en á hinar endurskinsvörurnar er logo félagsins sett á með glærum límmiða sem er til hjá félaginu.
Endurskinsvesti Smellubönd
Hlaupabelti Skáborðar
Einnig er félagið með til sölu nýburagjöf sem samanstendur af stóru endurskinsmerki sem er ætlað á barnavagn( strák eða stelpu ), kokhólk og bæklingnum er öryggi barnanna tryggt á þínu heimili.