Um skólann

Slysavarnaskóli sjómannaSlysavarnaskóli sjómanna er í eigu Slysavarnafélagsins Landsbjargar en hann var stofnaður árið 1985 til að sinna öryggisfræðslu fyrir sjómenn. Námskeið skólans eru öllum opin en á námskrá er að finna námskeið, sem henta þeim sem vinna á sjó, við hafnir eða dvelja við leik og störf við ár eða vötn. Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á fjölda afmarkaðra námskeiða, sem sniðin eru með þarfir íslenskra sæfarenda í huga.
 
Vorið 2005 fékk Slysavarnaskóli sjómanna, fyrstur skóla á Íslandi, vottorð Vottunar hf. til staðfestingar á að skólinn starfrækti gæðakerfi sem samræmis kröfum í ÍST EN ISO 9001:2000 gæðastaðlinum.  Vottorðið tekur til reksturs skólans til að annast fræðslu um öryggis- og björgunarmál sjófarenda, og nær það yfir hönnun, sölu og kennslu á skyldu- og sérnámskeiðum, þ.m.t. öryggisfræðslunámskeiðum samkvæmt STCW alþjóðasamþykktinni (International Convention on Standards of Training, Certification and Watchkeeping for Seafarers).
 
Slysavarnafélagið Landsbjörg er aðili að Alþjóðasamtökum öryggis- og björgunarskóla, International Association for Safety and Survival Training, og er skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna jafnframt formaður samtakanna.  Slysavarnaskóli sjómanna hefur tekið virkan þátt í Leonardo da Vinci verkefninu Securitas Mare og Securitas Mare II
 
 

Securitas Mare

IASST logo

Vottun ISO 9001

                                                                        

 
 
 
 
Slysavarnaskóli sjómanna
Sími: 562 4884 – Farsími: 852 0028
Fax: 562 4889
Netfang: saebjorg@landsbjorg.is

 

 





 

Flýtileiðir


Leit


Breyta um leturstærð