
Almenn skyndihjálp er fyrsta aðstoð sem veitt er slösuðum eða veikum þar til viðeigandi læknishjálp berst. Ef rétt er að skyndihjálp staðið getur hún skilið á milli lífs og dauða. Ráðlegt er að fara á skyndihjálparnámskeið á 2-3 ára fresti.
Björgunarskóli Slysavarnafélagsins Landsbjargar hefur á boðstólum fjölda námskeiða fyrir almenning og fyrirtæki. Skólinn bíður upp á fyrstu hjálpar námskeið, námskeið í ferðamennsku og rötun, notkun GPS tækja svo eitthvað sé nefnt. Námskeið skólans eru annað hvort auglýst sérstaklega og opin öllum eða haldin samkvæmt beiðni fyrirtækja og félagasamtaka. Hægt er að fá sérsniðin námskeið eftir þörfum hvers og eins.
Hægt er að kynna sér tímasetningar námskeiða á heimasíðunni eða senda fyrirspurnir á netfangið:
skoli@landsbjorg.is.