Hopp á trampólíni er frábær líkamsþjálfun, þjálfar jafnvægi og samhæfingu hreyfinga auk þess að styrkja vöðva bæta geð. Mikilvægt er þó að hafa öll öryggismál í lagi til að koma í veg fyrir slysin sem eru alltof mörg og verða flest vegna rangrar notkunar trampólínsins.
-
Mjög mikilvægt er að fara eftir þeim leiðbeiningum sem fylgja trampólíninu þegar það er sett upp.
-
Autt svæði verður að vera undir trampólíninu og í a.m.k. 2,5 metra í kring.
-
Best er að staðsetja trampólínið á grasi, það minnkar líkur á slysum ef dottið er út fyrir trampólínið.
-
Festið trampólínið tryggilega niður t.d. með u-laga járni sem stungið er yfir fæturna og niður í jörðina.
-
Öryggisnet þarf að vera á trampólíninu, það minnkar líkur á að dottið sé út af því en við það verða oft alvarleg slys.
-
Gormar eiga að vera heilir og jafnstífir, ef það er ekki þá aukast líkur á að þeir sem nota trampólínið misstígi sig.
-
Fylgjast þarf með að rammi og undirstöður trampólínsins séu í lagi.
-
Dúkur verður að vera yfir gormunum.
-
Trampólín eru gefin upp fyrir ákveðna hámarksþyngd og á henni byggist stöðuleiki trampólínsins.
-
Umgengnisreglur verður að setja á trampólíninu og skiptir þar mestu að aðeins einn hoppi í einu.
-
Mikilvægt er að taka trampólínið inn yfir vetratímann. Þau taka á sig mikinn vind og fjúka auðveldlega.
Megi þið eiga ánægjulegar stundir við leik