Fimmtudagur 14. maí:
• Hittingur á Kaffi Akureyri kl. 21:00.
Föstudagur 15. maí:
• Skráning á þingið hefst kl. 13:00 í Íþróttahöllinni á Akureyri. Nánari dagskrá þings er að finna
hér.
• Þing hefst kl. 14:00 og stendur til kl. 18:00.
• Sveitaball með þemanu ,,Gamalt íslenskt“ í Hlíðarbæ kl. 20:00-23:00. Rútur fara klukkan 19:30 með félagsfólk fram og til baka frá miðbæ Akureyrar og allir beðnir um að skilja björgunarsveitabíla eftir inni á Akureyri. Grillað verður ofan í mannskapinn.
Sjá auglýsingu hér.
Laugardagur 26. maí:
• Þing hefst kl. 9:00 og áætluð lok um 16:00.
• Umræðuhópar og kosning verða í Brekkuskóla við hliðina á Íþróttahöllinni.
Eftirfarandi umræðuhópar verða í gangi:
1. Aðgerðamál og svæðisstjórnir
• Tillaga um áherslur er varða lágmarksmenntun björgunarmanna SL
2. Unglingamál
3. Menntun og þjálfun björgunarsveitafólks
• Björgunarskólinn stuðli að því að vera með fleiri leiðbeinendur á landsbyggðinni
4. Fjarskipti
5. Fatamál
6. Sjóbjörgun
7. Bókhald og hagkvæmur rekstur eininga
• Flutningskostnaður inn í verð flugelda
• Tillaga um endurskoðun og innra eftirlit á ársreikningum eininga
• Tillaga um samræmt bókhaldskerfi eininga SL
8. Árangur af kvennaþingi og áframhald þeirrar vinnu
9. Slysavarnir barna
10. Ný nálgun í rekstri deilda og verkefni
11. Innra starf félagsins
• Tillaga um fyrirkomulag formannssetu stjórnarmanna SL í einingum
• Tillaga um atkvæðamagn eininga SL
• Dagskrártillaga. Lagt til að þar komi fram ályktanir um slysavarnamál, björgunarmál,
unglingamál og aðkomu Slysavarnafélagins Landsbjargar að ýmsum málefnum
samfélagsins.
Einingar eru hvattar til að skipta sér niður á hópa í stað þess að allir sem sækja þing frá tiltekinni einingu fari í sama umræðuhópinn.
• Björgunarleikar hefjast klukkan 9:00 á laugardeginum og standa fram eftir degi.
• Árshátíð hefst kl. 20:00 en húsið opnar kl. 19:30.
Sjá auglýsingu hér.
• Veislustjóri verður Óskar Pétursson, Álftagerðisbróðir.
• Matti, Magni og félagar leika fyrir dansi.
Björgunarleikar
Nánari upplýsingar er að finna
hér og auglýsing leikanna er
hér.
Gisting
Hótelgerbergi eru frátekin á Hótel Kea og Hótel Norðurlandi til 24. apríl og bókar félagsfólk sig þar í síma 460-2000 eða hjá Gistiheimili Akureyrar í síma 462-5600 og þar eru herbergi líka frátekin til 24. apríl.
Flug
Samið hefur verið við Flugfélag Íslands um flug landsþingsgesta til Akureyrar. Um áætlunarflug er að ræða og gildir tilboðið í flug dagana 14. - 18. maí 2009. Félagar SL sjá sjálfir um að bóka flug hjá Flugfélagi Íslands.
Hópverð flug Reykjavík-Akureyri-Reykjavík Flugverð kr. 17.300.- með sköttum
Hópverð flug Ísafjörður-Akureyri-Ísafjörður Flugverð kr. 20.360.- með sköttum
Hópverð flug Vestmanneyjar-Akureyri-Vestmannaeyjar Flugverð kr. 18.960.- með sköttum
Hópverð flug Egilsstaðir-Akureyri-Egilsstaðir Flugverð kr. 22.160.- með sköttum
Skilmálar:Fargjaldið veitir ekki vildarpunktaBreytingargjald kr 1500.-Fargjaldið er endurgreitt að frádregnum kr 1500.- fyrir fluglegg ef afbókað er lágmark 24 klst. fyrir brottför.Leyfilegur innritaður farangur er 20 kg. á mann.Fargjaldið er eingöngu bókanlegt hjá Hópadeild Flugfélags Íslands í síma5703075 milli kl. 09.00 og 16:00 virka daga eða senda e-mail hopadeild@flugfelag.is Fargjaldið greiðist við bókun
Bókanir
Skráning á Landsþing er nú LOKUÐ
Þingmál fulltrúa á landsþingi
Hver fulltrúi á landsþingi á rétt á að flytja mál á þinginu. Mál sem fulltrúar hyggjast flytja skulu hafa borist stjórn félagsins a.m.k. tveim vkum fyrir þing þ.e. 30. apríl n.
Kynning á frambjóðendum til stjórnar og í milliþinganefndir:
Hér er kynning á frambjóðendum.