Slysavarnafélagið
Landsbjörg eru landssamtök björgunarsveita og slysavarnadeilda á Íslandi.
Starfsemin miðar
að því að koma í veg fyrir slys og bjarga mannslífum og verðmætum. Í þeim
tilgangi er öflugur hópur sjálfboðaliða til taks ef út af bregður, á nóttu sem
degi, allt árið um kring.
Félagið á rætur
sínar að rekja aftur til fullveldisársins 1918 þegar Björgunarfélag
Vestmannaeyja var stofnað. Slysavarnafélagið Landsbjörg var stofnað 2. október
1999 en þá sameinuðust Slysavarnafélag Íslands, sem var stofnað 1928 og
Landsbjörg, landssamband björgunarsveita, sem var stofnað 1991, en það varð til
við samruna Landssambands Hjálparsveita skáta sem var stofnað 1971 og
Landssamabands flugbjörgunarsveita sem var stofnað 1974.
Við stofnun
Slysavarnafélagsins Landsbjargar urðu til ein stærstu samtök sjálfboðaliða á
Íslandi með um 18 þúsund félögum sem starfa í björgunarsveitum, slysavarna- og
unglingadeildum.
Fyrsta
björgunarskipið, fyrsta björgunarþyrlan, Tilkynningaskylda íslenskra skipa og
Slysavarnaskóli sjómanna eru aðeins örfá þeirra framfaraspora sem
Slysavarnafélagið Landsbjörg og móðurfélög þess hafa stigið, landsmönnum til
heilla.
Forseti Íslands
er verndari Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Slysavarnafélagið Landsbjörg
Skógarhlíð 14
105 Reykjavík
Sími 570-5900, símbréf 570-5901,
e-mail
skrifstofa@landsbjorg.is
kt. 560499-2139