07.09
Göngum í skólann 2010
Göngum í skólann verður sett formlega í Fagralundi í Kópavogi miðvikudaginn 8. september næstkomandi kl. 10.00 í samstarfi við Fossvogsskóla og Snælandsskóla. Í ár tekur Ísland þátt í fjórða skipti í alþjóðlega verkefninu Göngum í skólann. Verkefnið hófst í Bretlandi árið 2000 og hefur þátttaka stöðugt farið vaxandi. Hér á landi stefnir í metþátttöku í ár. Á alþjóðavísu er Göngum í skólann mánuðurinn í október og Alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn í ár er 6. október. Hægt er að velja hvort tekið er þátt í Göngum í skólann deginum, mánuðinum eða hluta úr mánuði. Með hliðsjón af veður- og birtuskilyrðum fer Göngum í skólann verkefnið fram hér á Íslandi í septembermánuði og því lýkur á Alþjóðlega Göngum í skólann deginum þann 6. október.
05.09
Slasaður á Sólheimajökli
Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá Hvolsvelli, Vík og Hellu voru kallaðar út klukkan 14:45 í dag vegna manns sem slasaðist á göngu í skriðjökli sem gengur niður af Sólheimajökli. Um er að ræða erlendan ferðamann sem var á ferð með um 15 manna hóp og íslenskum leiðsögumönnum. Samkvæmt fregnum frá slysstað er hann ekki alvarlega slasaður en ógangfær. Því þarf að bera hann af jöklinum og í sjúkrabíl. Um 15-20 björgunarsveitarmenn taka þátt í aðgerðinni en böruburður í fjalllendi er afar erfitt verk og krefst mikils mannafla.
03.09
Undirbúningur Björgunar 2010 í fullum gangi
Þann 22.- 24. október verður ráðstefnan Björgun 2010 haldin á Grand hóteli í Reykjavík. Að venju er fjöldi fróðlegra og áhugaverðra fyrirlestra í boði en þeir verða yfir 60 talsins. Fyrirlesarar eru bæði íslenskir og erlendir og verða fyrirlestrar fluttir á ensku túlkaðir fyrir þá sem það vilja. Einn salur af fjórum verður að þessu sinn lagður undir rústabjörgun, Íslensku alþjóðabjörgunarsveitina og ferð hennar til Haiti fyrr á þessu ári. Nánari upplýsingar um ráðstefnuna og dagkránna utan hinna hefðbundnu fyrirlestra má finna hér.