Fréttir

26.04

Ný stjórn Björgunarsveitarinnar Ísólfs

Á aðalfundi Björgunarsveitarinnar Ísólfs sem haldinn var laugardaginn 24. apríl s.l. var kjörin ný stjórn
 
Guðjón Sigurðsson, formaður
Kristján Kristjánsson, varaformaður
Örvar Jóhannsson, ritari
Helgi Haraldsson, gjaldkeri
Rúnar Hjelm, meðstjórnandi
 
Varamenn:
Guðjón Már Jónsson og Trausti Marteinsson

20.04

Stór snjóflóðaæfing á Seyðisfirði

Um nýliðna helgi var haldin nokkuð stór æfing snjóflóðaæfing hér á Seyðisfirði, í æfingunni tóku þátt stjórnendur, björgunarfólk, unglæknar úr Reykjavík auk hóp sjúklinga og var heildarfjöldi þátttakenda um 110.
Æfingin sem fram fór laugardaginn 18. apríl gekk í alla staði mjög vel og sýndi sig að björgunarsveitir hér á svæðinu eru vel í stakk búnar að sinna þeim verkefnum sem koma upp í kjölfar snjóflóðs af þessari stærðargráðu.
Meiri hluti björgunarsveitafólksins sem tók þátt í þessari æfingu er héðan af Austurlandi en nokkur hópur fólks kom þó frá Dalvík, en segja má að Dalvík sé nokkurskonar vinarbær Austfirskra björgunarsveita.  Eftir æfinguna  fóru svo þátttakendur í sund og skoðuðu sig að því loknu um í bænum, um kvöldið fór svo fram, í Herðubreið, árshátíð björgunarsveita á Austurlandi og fór hún vel fram að venju.

09.04

Vígsla snjóbíls frestast

Af óviðráðanlegum orsökum frestast fyrirhuguð vígsla snjóbílsins sem fara átti fram á páskadag um óákveðin tíma. 

03.04

Snjóbíllinn færður uppá skíðasvæði

SnjóbíllinnÍ kvöld var snjóbíllinn fluttur uppá skíðasvæðið í Stafdal þar sem munu fara fram prófanir á honum næstu daga.  Því miður skyldi Helgi myndavélina eftir heima í kvöld og þess vegna getum við ekki sett inn neinar myndir af þessum flutningi, en meðfylgjandi mynd var tekin þegar bíllinn var fluttur frá áhaldahúsinu að Sæbóli.

23.03

Björgunarsveitin eignast snjóbíl

,,Nýji" snjóbíllinnÁ dögunum samþykkti bæjarstjórn Seyðisfjarðar að færa björgunarsveitinni Ísólfi að gjöf gamla snjóbílinn sem þjónað hefur Seyðfirðingum dyggilega í gegnum tíðina.  Bíllinn hefur þó staðið óhreyfður við áhaldahús bæjarins um nokkurra ára skeið og var hann talsvert farinn að láta á sjá.


Undanfarið hafa félagar í björgunarsveitinni unnið hörðum höndum við að koma bílnum í viðunandi ástand.
Því á meðan ástandið á Fjarðarheiði verður eins og það hefur verið í vetur er þörfin fyrir tæki sem þetta mikil til að tryggja öryggi þeirra sem um heiðina fara.



Tenglar hægri hlið

Auglýsingaborðar


 

Flýtileiðir

Breyta um leturstærð



Auglýsingaborðar