23. mars 2009
Á dögunum samþykkti bæjarstjórn Seyðisfjarðar að færa björgunarsveitinni Ísólfi að gjöf gamla snjóbílinn sem þjónað hefur Seyðfirðingum dyggilega í gegnum tíðina. Bíllinn hefur þó staðið óhreyfður við áhaldahús bæjarins um nokkurra ára skeið og var hann talsvert farinn að láta á sjá.
Undanfarið hafa félagar í björgunarsveitinni unnið hörðum höndum við að koma bílnum í viðunandi ástand.
Því á meðan ástandið á Fjarðarheiði verður eins og það hefur verið í vetur er þörfin fyrir tæki sem þetta mikil til að tryggja öryggi þeirra sem um heiðina fara.

Snjóbíllinn sem hér um ræðir af gerðinni
Kässbohrer Pisten-Bully 170 árgerð 1979 og var bíllinn fluttur inn nýr fyrir Vélsmiðjuna Stál. Í Stál var smíðað á bílinn 15 manna farþegahús og var bíllinn notaður til fólksflutninga yfir Fjarðarheiði á vetrum lengi framan af. Samhliða fólksflutningunum var snjóbíllinn jafnframt notaður sem snjótroðari á skíðasvæðum Seyðfirðinga en það er reyndar það hlutverk sem framleiðandi bílsins ætlar bílum af þessari gerð fyrst og fremst. Seinna meir eignaðist Seyðisfjarðarkaupstaður bílinn og var hann þá nær eingöngu notaður sem troðari á skíðasvæðinu í Stafdal þar til hann var fluttur niður í bæ þar sem hann hefur staðið eins og áður segir óhreyfður í nokkur ár.
Á undförnum vikum hefur verið unnið að því að taka farþegahúsið í gegn og hefur það verið málað, skipt hefur verið um ljós á því og merkingar munu fara á húsið á næstu dögum, einnig hefur verið farið rækilega yfir bílinn og gær var farið í prufurúnt og kom hann áfallalaust útúr því og er stefnan að á næstu dögum verði farið með bílinn upp á skíðasvæði til frekari prófana þar sem koma mun í ljós hvort einhverjir veikir hlekkir séu eftir sem þarf að lagfæra. Þó liggur fyrir að nauðsynlegt er að skipta um belti á tækinu áður en langt um líður.
Til baka