3. apríl 2009

Í kvöld var snjóbíllinn fluttur uppá skíðasvæðið í Stafdal þar sem munu fara fram prófanir á honum næstu daga. Því miður skyldi Helgi myndavélina eftir heima í kvöld og þess vegna getum við ekki sett inn neinar myndir af þessum flutningi, en meðfylgjandi mynd var tekin þegar bíllinn var fluttur frá áhaldahúsinu að Sæbóli.
Á morgun er stefnan að fara í fyrsta prufurúntinn á skíðasvæðinu og vonum við að veðrið verði hentugt til myndatöku þá.
Til baka