Fréttir

07.10

Vinnudagur 4.okt.

Þann 4. okt. var haldin vinnudagur hjá Kóp og heppnaðist hann mjög vel um 15 manns voru við smíðar í nýju stöðinni og var miklu áorkað þó enn sé drjúgt eftir. Gísli Ægir grillaði steinbít fyrir mannskapinn í hádeginu og kom það sér vel í svanga smíðamenn. þökkum við Gísla fyrir frábæran fisk. Svo komu slysavarakonur og færðu okkur nýbakað með seinna kaffinu og viljum við færa þeim þökk fyrir það.
 
Um kvöldið hélt Kópur og Slvd. kvenna sameiginlegt bjórkvöl sem heppnaðist alveg þokkalega, fámennt en góðmennt.
 
Langar okkur í stjórn Kóps til þess að koma þakklæti til allra sem tóku þátt í þessu með okkur.
 
kveðja, Jón Hákon
 
Linkur inn á bíldudalur.is þar sem má sjá nokkrar myndir http://www.bildudalur.is/?c=webpage&id=322
 

12.09

Ákall

Ágætu brottfluttu Arnfirðingar,

 

Við erum hjá Björgunarsveitinni Kóp á Bíldudal að leita eftir auglýsingakaupendum í árlegt dagatal sveitarinnar 2009.

 

Ástæðan fyrir því að við leitum til ykkar er sú að fjáröflunarsvæði okkar hefur rýrnað og rýrnað undanfarin ár/áratug og nú er að því komið að einstaklingar og fyrirtæki á staðnum eru ekki lengur sá fjöldi að hægt er að halda úti sveit með góðu móti, þ.e. að krúnka endalaust fé úr sama litla kjarnanum J. Langar okkur því að biðla til ykkar sem brottflutt eru til þess að kaupa hjá okkur styrktarlínu eða auglýsingu.

 

Nánar um auglýsinguna þá er þetta dagatal sem er dreift frítt á Bíldudal, Tálknafirði, Patreksfirði. Á þessu dagatali eru þjónustuaðilar með auglýsingu og aðrir velgjörðarmenn. Auglýsingar þessara aðila eru ávallt sýnilegar þar sem dagarnir eru rifnir úr miðju spjaldinu.

 

Auglýsing í þetta dagatal (lógó) er 15.000 kr. eða 25.000 kr.

Styrktarlína 10.000 kr. (þetta er ekki bara fyrir fyrirtæki heldur líka einstaklinga)

 

Enn og aftur langar okkur til þess að biðla til ykkar svo við og getum sinnt því mikilvæga starfi okkar sem björgunarsveit áfram.

 

Um leið langar mig til þess að geta þess að 4. okt. næstkomandi verður vinnudagur hjá sveitinni og markmiðið er að klára að klæða húsið að innan. Verður svo glaumur og gaman um kvöldið í samstarfi við slysavarnakonur.

 

Með bestu kveðju og von um góð viðbrögð,

Jón Hákon Ágústsson, formaður Kóps

jonhakon@simnet.is

897-6458

24.08

Vinnudagur 4.okt.

Jæja, þá er komið að því að halda aftur vinnudag eða þann 4. okt næstkomandi og reyna að klára að klæða húsið að innan. Viljum við hvetja alla sem vettlingi geta valdið til þess að leggja okkur lið. Ætlum við að fá Kvennadeildina til þess að baka eitthvað gott fyrir okkur með kaffinu og gera svo eitthvað skemmtilegt um kvöldið :-) nánar auglýst síðar.
 
En næst á dagskrá er 40 ára afmæli Blakks á Patró og ætlum við að leggja þeim lið eftir fremsta megni, það verður bara gaman.
 
sæl að sinni,
 
Nonni

12.06

Aðalfundur Kóps

Þann 17. maí var haldinn aðalfundur Kóps í húsnæði félagssins kl. 10:00 og gekk hann vel fyrir sig, engin slagsmál eða læti :-) En það urðu smá breitingar á stjórn þ.e. Fanni fór í varastjórn og Valdi upp í varaformanninn, þá kom Ninni inn fyrir Sverrir í varastjórn og Steini inn fyrir Smára í varastjórn einnig.
 
Eftir fundinn ákváðu Kópsmenn að grilla fyrir fjölskyldur og þá sem áttu leið hjá til þess að vekja athyggli og áhuga á sveitinni. Þetta tókst mjög vel og komu fjöldi fólks og fékk sér í gogginn. Að grilli loknu var farið með unga sem aldna í bátsferð um voginn og vakti það mikla lukku á meðal unga fólkssins. En myndir af þessu er hægt að sjá inn á http://www.bildudalur.is/?c=webpage&id=290
 
kv, Jón Hákon



Tenglar hægri hlið

Auglýsingaborðar


 

Flýtileiðir

Breyta um leturstærð



Auglýsingaborðar