19.01
Prjónakaffi á laugardögum
Við höldum ótrauðar áfram að hittast á laugardögum í vetur, með handavinnuna í Gaujabúð, og hvetjum félagskonur til að taka með sér gesti því það eru að sjálfsögðu allir velkomnir.
Prjónakaffi verður þessa daga : 28. janúar - 11.febrúar - 25. febrúar - 10. mars og 24. mars.
Húsið er opið frá kl. 11:00 – 14:00 og er heitt á könnunni.
Hvetjum alla, konur og kalla til að mæta hress með sínar hannyrðir.
18.01
Varðan og Ársæll tóku þátt í messu 15.01.2012
Slysavarnadeildin Varðan og Björgunarsveitin Ársæll tóku þátt í guðsþjónustu í Seltjarnarneskirkju sunnudaginn 15. janúar. Bára, Birna og Erna úr Vörðunni ásamt Herði úr Ársæli lásu ritningar og bænir. Petrea frá Vörðunni og Borgþór frá Ársæli voru með hugvekju. Við athöfnina afhentu Vörðukonur kirkjunni peningagjöf til styrktar starfi kirkjunnar. Á eftir var kirkjugestum boðið upp á kaffi og með því, en félagar úr báðum einingum komu með meðlæti.
15.01
Kynningarfundur 17.janúar 2012 (sjá nánar)
Þriðjudaginn 17. Janúar næstkomandi bjóða slysavarnadeildir um allt land gesti velkomna í húsnæði sitt og kynna þar starf sitt fyrir þeim aðilum sem áhuga hafa á því að starfa með deildunum. Ef þú vilt slást í hóp skemmtilegs fólks sem sinnir uppbyggilegu og áhugaverðu starfi um land allt bjóða slysavarnadeildir þig velkomin næsta þriðjudag.
Við í Vörðunni bjóðum í vöfflukaffi og spjall í Gaujabúð, Bakkavör við Suðurströnd á Seltjarnarnesi kl 20:00.
03.01
Varðan í guðsþjónustu í Seltjarnarneskirkju.
Sunnudaginn 15. janúar 2012 klukkan 11:00 verður guðsþjónusta í Seltjarnarneskirkju sem tileinkuð er slysavarna- og björgunarsveitafólki. Félagar úr Vörðunni og Ársæli munu taka virkan þátt í messunni og að henni lokinni verður boðið uppá veitingar í safnaðarheimilinu. Hvetjum við alla til að mæta og félaga til að mæta í rauðu peysunum.
11.11
Nýburagjafir Vörðunnar 2011

Vörðukonur hafa útbúið nýburagjafir til að afhenda nýfæddum börnum á svæði Heilsugæslu Seltjarnarness. Í pakkanum eru upplýsingar um slysavarnir í heimahúsum, sýnishorn af öryggisbúnaði fyrir heimili, endurskinsmerki ásamt ýmsum gagnlegum upplýsingum um félagið. Starfsfólk Heilsugæslunnar mun afhenda foreldrum nýburanna gjafirnar og er myndin tekin þegar Vörðukonur fóru með gjafirnar á Heilsugæsluna.
07.11
Neyðarkall 2011
Við í Slysavarnardeildinni Vörðunni þökkum öllum velunnurum okkar fyrir stuðninginn þessa helgina. Gott að finna þá velvild sem félagið á meðal fólks.
09.10
Viðurkenning til Vörðunnar 2011

Fimmtudagskvöldið 06.10 fórum við Bára gjaldkeri á félagsfund hjá Ársæli en það hafði borist póstur og ósk um að fulltrúi í stjórninn okkar kæmi og veitti viðtöku viðurkenningu frá þeim. Þeir vildu sýna okkur í verki að þeir væru þakklátir okkur fyrir allan stuðningin og styrkina sem við höfum veitt þeim. Okkur var afhentur stór Neyðarkall með gylltum skildi og bókin Hamfarir á Haití.
Þórdís Pétursdóttir Formaður.
04.10
Fréttabréf Október 2011 (sjá nánar)
FRÉTTABRÉF
SLYSAVARNADEILDIN VARÐAN Seltjarnarnesi Stofnuð 15. nóvember 1993
Október 2011
Vetrarstarf Slysavarnadeildarinnar Vörðunnar hefst mánudaginn 10. október 2011 með fundi í Gaujabúð, björgunarstöðinni við Bakkavör. Fundurinn hefst kl. 20.00. Á fundinn munu Vörðukonur fá góða gesti frá Akranesi, en aðalgestur á fyrsta fundi verður Ragna Árnadóttir fyrrverandi mannréttindamálaráðherra.
12.09
Framundan hjá Vörðunni haustið 2011
Nú fer starfið að fara á fullt skrið aftur hjá okkur í Slysavarnadeildinni Vörðunni eftir sumarfrí. Starfið verður með hefðbundnum hætti, mánaðarlegir fundir, annan mánudag í mánuði og prjónakaffi á laugardögum sem auglýst er sérstaklega. Þessir fundir eru öllum opnir og tökum við vel á móti gestum.
Við tökum þátt í evrópsku samgönguvikunni sem stendur yfir 16. - 22. september og heimsækjum skólana. Eins og ávallt munum við gefa skólabörnum á Seltjarnarnesi endurskinsmerki nú þegar daginn tekur að lengja og skammdegið tekur völdin, þá er nauðsynlegt að bera þau.
SJÁUMST !!