Fréttir

20.04

Fjölskyldudagur - Sumardagurinn fyrsti.

Sumardagurinn fyrsti var í gær og þá er blásið til fjáröflunar fyrir björgunarsveitina og þar eru konurnar í slysavarnadeildinni Sjöfn fremstar flokki. Fjölskyldudagur var yfirskriftin á dagskránni í gær þar sem Einherji sá um leiki og þrautir fyrir framan Félagsheimilið og þar í kring. Fyrst var samverustund í Vopnafjarðarkirkju þar sem börnin voru máluð í framan og ýmisleg skemmtilegt gert. Efir sprellið á bílaplaninu var Vopni með rjúkandi vöfflur og hrikalega góðar skúffukökur handa öllum. Konurnar í Sjöfn höfðu bakað hrikalega magnaðar tertur og voru með kökubasar en þetta var allt gert til að standa við bakið á björgunarsveitinni Vopna. Stjórn Vopna vill koma fram þakklæti til allra sem komu og styrktu gott málefni og einnig þeim frábæru dugnaðarforkum slysavarnardeildar Sjafnar, þeim verður seint full þakkað fyrir allt sem þær gera í þágu samfélagsins.

16.02

Aðalfundur Vopna 2012

Aðalfundur björgunarsveitarinnar Vopna verður haldinn í Vogabúð Vopnafirði 23.febrúar 2012. Klukkan 20:30.
Nýir félagar velkomnir.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.

13.02

112-dagurinn

112 - einn einn tveir dagurinn var haldinn hátíðlegur á Vopnafirði eins og víðar um landið í dag. Allir Viðbragðsaðilar á Vopnafirði komu saman upp í slökkvistöð og héldu saman upp á daginn og buðu upp á kaffihlaðborð en slysavarnarkonur sáu um kræsingarnar eins og þeim er einum lagið. Farinn var einn hringur um bæinn á þeim tækjum sem tiltæk eru hér og er það glæsilegur floti sem við höfum yfir að ráða. Þegar hringnum var lokað upp í slökkvistöð var stóð öllum það til boða að skoða tæki og tól og var það mjög vinsælt af yngri kynslóðinni eins og gefur að skilja. Slagorð dagsins er 112: Ekki hika – hringdu til öryggis.

07.12

Börnum gefið endurskinsmerki og neyðrakall.

Í morgun fóru fulltrúar frá björgunarsveitinni Vopna og Slysavarnardeildinni Sjöfn í alla bekki grunnskólans á Vopnafirði og gáfu börnunum endurskinsmerki og Neyðarkall. Þessar heimsóknir eru hluti af árlegum forvarnarverkefnum slysavarnardeildarinnar Sjafnar og Vopni fékk fyrirtækin Bílar og Vélar, Bræður ehf og Háahraun til gefa Neyðarkallana. Mikil ánægja var meðal barnanna þegar Hrönn frá Sjöfn og Jón frá Vopna komu færandi hendi í morgun. Sjáumst í umferðinni og notum endurskinsmerki.

03.11

Sala á neyðarkallinum hefst í dag

Neyðarkall björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar verður seldur um land allt nú um helgina, dagana 3.-6. nóvember. Salan hefst í dag en þetta er í sjötta sinn sem þessi fjáröflun fer fram. Líkt og áður er um að ræða sölu á litlum neyðarkalli á lyklakippu sem nú er eftirlíking af fjallaskíðakonu. Sjálfboðaliðar björgunarsveitanna munu bjóða hann til sölu um allt land á 1.500 krónur þessa fjóra daga á meðan átakið stendur. Ég hvet alla Vopnfirðinga til þess að taka vel á móti okkar fólki. Aukin verkefni björgunarsveitanna kalla á meira fé til starfseminnar og er þetta okkar leið til að bregðast við því. Almenningur er því hvattur til þess að stuðla að eigin öryggi með stuðningi í þessu átaki. Björgunarsveitarfólk er með mjög fjölbreytta sérhæfingu en þar er að finna m.a. sjóbjörgunarmenn, kafara, göngugarpa, bílstjóra, skyndihjálparsérfræðinga, tækjafólk, klettaklifrara svo fátt eitt sé nefnt. Árið 2011 er Neyðarkallinn eftirlíking af fjallaskíðakonu.

24.10

Gert við búnað á Hellisheiði í dag.

Vopni 1 upp á Hellisheiði í dag.þau eru margvísleg verkefnin sem björgunarsveitir leysa. Vaktstöð siglinga er partur af öryggiskerfi okkar Íslendinga en þeirra aðalverkefni er eins og nafnið gefur til kynna er að vakta skipaflotann og fylgjast með hvort skip og bátar séu öryggir og allt sé í lagi. Til þess nota þeir tækni sem byggist á sendum og móttökubúnaði sem er staðsettur á háttsettum stöðum víða í kringum landið. þessi búnaður bilar ekki bara þegar best er að gera við hann og í dag kom beiðni frá Vaktstöð Siglinga vegna búnaðar á Hellisheiði Eystri sem ekki var að gera það sem ætlast er til af honum. Björgunarsveitin Vopni var fengin til að fara upp á heiðina með varahluti og skipta um búnað. Veðrið í Vopnafirði var ágætt í dag, norðan gola og 4 stiga hiti svo verkefnið virtist ekki flókið eða erfitt. En þegar komið er upp í rúmlega 700 metra yfir sjáfarmál þá er verið að tala um allt annað mál. Þar var allt á kafi í snjó, skafrenningur og frost og leiðinda færi fyrir jeppa sem var þó á 40 tommu loftlitlum dekkjum. En eftir 5 tíma bras var búnaðurinn kominn í lag og menn komnir til byggða eftir velheppnaðan leiðangur. Þeir sem fóru þessa ferð stóðu sig vel og eiga heiður skilið fyrir vikið.

19.08

Vopni kallaður út í gær

Rétt fyrir klukkan tvö í gær voru björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar kallaðar út til aðstoðar við erlendan ferðamann í Kverkfjöllum. Maðurinn, sem er svissneskur, var á ferð með tveimur samlöndum sínum og höfðu þau gengið upp í Kverkfjöll á Vatnajökli til að skoða þar íshella. Svo virðist sem ís hafi fallið á fætur mannsins og töldu samferðamenn hann vera brotinn á báðum fótum. Þar sem ljóst var í upphafi að það myndi taka björgunarsveitir nokkrar klukkustundir að komast að manninnum var farið í að skoða hvort hægt væri að finna þyrlu til aðstoðar þar sem þyrla LHG var í viðgerð. Fengin var þyrla Norðurflugs sem lenti á sjötta tímanum í grennd við slysstaðinn en selflytja þurfti björgunarmenn frá Sigurðarskála í Kverkfjöllum á slysstaðinn. Þaðan báru björgunarmenn hinn slasaða um fimm hundruð metra yfir erfitt landslag og upp bratt einstigi. Það gekk þó með eindæmum vel og var sá slasaði fluttur á sjúkrahús þar sem gert var að meiðslum hans. Þegar verkefni björgunarmanna lauk þurftu þeir að ganga niður jökulinn og koma sér heim en reikna má að síðustu björgunarmenn hafi skilað sér heim fyrri part nætur. Aðgerðin gekk mjög vel með samstilltu átaki björgunarsveitarmanna, landvarða á svæðinu, lögreglu og annara viðbragðsaðila en segja má að veður og aðstæður á svæðinu hafi verið með besta móti.

22.06

Landsbankinn færir Vopna styrk.

17.júní var undirritaður styrktarsamningur á milli Landsbankans á Vopnafirði og Einherja. Samningurinn er til tveggja ára og er 250 þúsund hvort ár til Einherja en björgunarsveitin Vopni fær eingreiðslu upp á 250 þúsund samkvæmt samningnum. Svo ef eða þegar Einherji vinnur leik borgar Landsbankinn 10 þúsund kr. sem skiptast á milli Einherja og Vopna.

Það voru þau Einar Björn Kristbergsson formaður Einherja og Svanborg Víglundsdóttir útibússtjóri Landsbankans á Vopnafirði sem undirrituðu samninginn en Jón Sigurðarson formaður Vopna tók á móti ávísun upp á 250.000.-kr. Fyrir hönd Björgunarsveitarinnar Vopna vill Jón Sigurðarson formaður Vopna þakka Landsbankanum og Einherja kærlega fyrir stuðninginn og öllum Vopnfirðingum fyrir veittan stuðning á liðnum árum.

06.06

Sumarhappadrætti 2011

Sala á happadrættismiðum gekk vel og var sölufólki tekið vel. Happadrættið er okkar helsta tekjulind og er ég viss um að Vopnfirðingum finnist ekki komið vor fyrr en það fær björgunarsveitarmann í  heimsókn að selja miða. Við þökkum þennan góða stuðning og vonumst eftir honum áfram en án ykkar gerum við lítið.
Þó kalt sé úti og Hellisheiði ófær þá ætla ég samt að óska ykkur gleðilegs sumars.
Gleðilegt sumar :)
Kv. Jón Sigurðarson formaður Vopna.
Vinningar komu á þessi númer 2011 :


1. 186
2. 91
3. 71
4. 85 
5. 385
6. 81
7. 202
8. 295
9. 112
10. 44
11. 320
12. 322
13. 327
14. 169
15. 47
16. 296
17. 206
18. 193
19. 337
20. 381
21. 208
22. 275

08.05

Sumarhappadrætti Vopna

Nú líður að því að félagar í Vopna fari að selja Happadrættismiða í sínu árlega sumarhappadrætti en dregið er á sjómannadaginn eins og undanfarin ár. Þetta er okkar helsta fjáröflun svo við vonum að Vopnfirðingar taki sölufólki okkar vel og kaupi miða. í ár eru veglegir vinningar eins og áður og til mikils að vinna en jafnframt verið að styrkja gott málefni en eins og fólk veit þá er björgunarsveitin skipuð sjálfboðaliðum sem eru tilbúnir að leggja allt frá sér dag eða nótt til að koma fólki eða eigum þess til bjargar. Kæru Vopnfirðingar, gleðilegt sumar.
 

Niðurstöður 1-10 (af 34)
Síða:1 - 2 - 3 - 4« Fyrri · Næsta »

Til baka


Tenglar hægri hlið

Auglýsingaborðar


 

Flýtileiðir

Breyta um leturstærð



Auglýsingaborðar