26.08
Vetrarstarf að hefjast.
Nú er vetrarstarfið að hefjast en eins og oft áður er lítið um að vera yfir sumarmánuðina. Nokkur útköll hafa þó verið í sumar en engin stór. Stærsta verkefni sumarsins var þó hálendisgæslan en Vopni skilaði viku norðan Vatnajökuls. Víða var komið við á þessari viku og mikil reynsla safnaðist á svæðinu þó ekki hafi verið mikið að gera í að bjarga fólki eða verðmætum. Vonandi verður ekki mikið um útköll á þessum vetri en til stendur að hafa átak í menntunarmálum félaga í vetur svo við verðum betur í stakk búnir til að takast á við verkefnin þegar þau koma. Dagskrá vetrarinns verður auglýst á næstu dögum og eru nýjir félagar velkomnir. Kv. Formaður.
15.06
Sumarhappadrætti Vopna
Sala á happadrættismiðum gekk vel og var fólk almennt jákvætt fyrir sölufólki. Happadrættið er okkar helsta tekjulind og er ég viss um að Vopnfirðingum finnist ekki komið vor fyrr en það fær björgunarsveitarmann í heimsókn að selja miða. Við þökkum þennan góða stuðning og vonumst eftir honum áfram en án ykkar getum við lítið. Gleðilegt sumar.
Kv. Jón Sigurðarson formaður Vopna.
31.05
Leit að erlendum göngumanni.
Björgunarsveitir af svæði 13 leituðu í gærkvöldi og í
nótt að bandarískri stúlku sem skilaði sér ekki í Hérað en hún ætlaði
þangað frá Borgarfirði eystri. Um 90 björgunarsveitamenn tóku þátt í
leitinni sem hófst klukkan 21:00.Það voru 11 menn frá Vopna sem tóku
þátt í leitinni. Á fjórða tímanum í nótt heyrðist svo frá stúlkunni þar
sem hún var stödd í skálavarðahúsi í Breiðuvík og var hún heil á húfi.
17.05
Velheppnuð flugslysaæfing á Vopnafirði.
Á laugardagsmorguninn fengu viðbragðsaðilar á Vopnafirði
boð frá neyðarlinu um að 19 sæta flugvél hefði brotlent á
Vopnafjarðarflugvelli og það logaði í henni eldar. Undirbúningur
æfingarinnar var búinn að standa í nokkurn tíma svo æfingin sjálf gekk
vel en tilgangur hennar er að samhæfa viðbrögð allra bjarga við
stórslysi.
Það voru flugstoðir – Isavia sem skipulagði æfinguna í samvinnu
við Slökkvilið Akureyrar.
22.04
Gleðilegt sumar - Fjáröflunardagur slysavarnarkvenna.
Vel var mætt á fjáröflunardag Slysavarnafélagsins Sjafnar í dag í félagsheimilinu en þar seldu Slysavarnakonur kökur og voru með pakkauppboð. Félagar í Vopna og stúlkur úr unglingadeildinni sáu um kaffihús þar sem boðið var uppá vöfflur með rjóma, skúffukökur og kleinur. Gunnar Sigmarson spilaði undir á harmonikku og Björn Hreinsson á píanó. Börn úr grunnskólanum fóru með atriði sem þau sýndu á árshátíð skólans á dögunum og slógu rækilega í geng .Björgunarsveitin þakkar öllum sem komu til að styrkja málefnið eins fyrirtækjunum Mælifelli, Bílum og Vélum, Kauptúni og Mjólkursamsölunni sem styrktu okkur líka veglega.
12.02
Spjall og vinnukvöld
Í kvöld kl 20:30 verður spjall og vinnukvöld til undirbúnings fyrir morgundaginn. Léttar veitingar og ALLIR félagar velkomnir.
12.02
Þar kom að því, fyrsta útkall 2010
Það var laust fyrir kl. 22 í gærkvöldi að Vopni fékk boð frá lögreglu um bíl í vanda við Nykurvatn. Fóru 4 félagar á Vopna 1 í verkefnið og þegar að var komið voru 2 bílar á svæðinu, annar fastur í skaflinum en hinn beið. Var þeim hjálpað í gegn og gekk það vel.
10.02
Einn einn tveir dagurinn (112)
Í tilefni af 112 deginum munu viðbragðsaðilar á Vopnafirði vera með bíla sína og aðstöðu til sýnis við Vogabúð Laugardaginn 13.02.
Hefst dagurinn kl. 13.00 á því að bílarnir keyra um fjörðinn og verða síðan við Vogabúð til kl. 17.00. Allir eru hvattir til að koma og skoða græjurnar og þiggja veitingar sem verða í boði Slysavarnadeildarinnar Sjafnar.
10.02
Sýndu hvað í þér bý
Félagsmálanámskeiðið, Sýndu hvað í þér býr, verður haldið
á Vopnafirði 11. febrúar kl. 18-22. Námskeiðið verður í Safnaðarheimili
Vopnafjarðarkirkju. Þátttaka er ókeypis fyirir félag Vopna.
Skráning fer fram í síma 473-1569 og á netfanginu thorunn@tna.is
Einnig eru upplýsingar veittar í þjónustumiðstöð UMFÍ í síma 568-2929
og á www.umfi.is
01.02
Aðalfundur 2010
Aðalfundur
björgunarsveitarinnar Vopna verður haldin þriðjudaginn 9. febrúar kl.
20:30
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Kosning stjórnar
Björgunarbátasjóðs
3. Önnur mál.
Stjórnin.