Björgunarsveitir fyrir austan fjall voru kallaðar út fyrir um klukkustund til að sækja erlendan ferðamann í Reykjadal. Maðurinn, sem var á göngu, steig í hver og brenndist á fæti.
Björgunarsveitir fóru á staðinn ásamt sjúkraflutningamönnum. Sá slasaði var búinn undir flutning og er nú verið að bera hann niður á bílastæðið við Hveragerði þar sem sjúkrabíll bíður. Gert er ráð fyrir að um klukkustund taki að bera hann þessa 2 km leið.