Landsbjörg notar vefkökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.
Nánar um vefkökunotkun
Námskeið þetta skal uppfylla kröfur STCW A-VI/4-1 um sjúkrahjálp (Medical First Aid). Námsefnið miðar að því að þjálfa sjófarendur í aukinni skyndihjálp.
Bóklegi hlutinn tekinn í fjarnámi og verklegi hlutinn þegar aðstæður leyfa.
Námskeiðið hefur að markmiði að fullnægja skilyrðum um öryggisfræðslu til sjómanna til samræmis við ákvæði laga og reglugerðar. Uppbygging og efni námskeiðsins tekur mið af og fullnægir þeim skilyrðum sem sett eru í kafla A-VI/4 og töflu A-VI/4-1 í STCW-kóðanum.
Markmið námskeiðs
Markmið með námskeiðinu er að nemendur fái upprifjun og viðbótar þekkingu í meðferð sjúkra og slasaðra um borð í skipum ásamt fræðslu í flutningi slasaðra.
Inntökuskilyrði
Nemandi skal hafa lokið grunnnámskeiði í skyndihjálp samkvæmt kafla A-VI/1 og töflu A-VI/1-3 í STCW kóðanum. Námskeiðið er ætlað stýrimönnum og vélstjórum og þeim sjómönnum sem vilja auka þekkingu sína í skyndihjálp og sjúkraflutningi innan skips.