Taiga jakkinn er úr GoreTex öndunarefni og framleiddur með kröfur atvinnumanna í huga. Jakkinn er heil skel með tveimur vösum að framan. Með því að hafa heila skel er komið í veg fyrir að notandinn blotni þótt gleymist að loka vasa. Vír er á hettunni og kemst hjálmur auðveldlega undir hana. Riflás er á ermum. Jakkinn er merktur Slysavarnafélaginu Landsbjörg á brjósti og baki. Íslenskar þvottaleiðbeiningar.