Tveimur örmagna konum bjargað af Fimmvörðuhálsi

7. júlí 2022 - Suðurland

Björgunarsveitum barst útkall rétt fyrir klukkan 6 í morgun frá tveimur konum sem voru veðurtepptar í tjaldi ofarlega á Fimmvörðuhálsi. Þær voru orðnar blautar og kaldar eftir baráttuna við veðrið. Þær náðu að hringja í Neyðarlínuna hraktar eftir nóttina og óskuðu eftir aðstoð.

Fyrstu björgunarsveitarmenn komu að konunum rétt upp úr klukkan 9 og náðu að gefa þeim heitt að drekka, næringu og þurr föt. Þær höfðu ekki orku í að ganga sjálfar til baka og því var beðið eftir að björgunarsveitafólk á sexhjólum kæmist nær þeim. Klukkan 11 voru hjólin komin á vettvang og lögðu fljótlega af stað með konurnar til mótst við björgunarsveitarbíla sem staddir voru á einhverju neðar á Fimmvörðuhálsinum. Eftir hádegi voru allir komnir niður á láglendið, konurnar héldu til byggða og björgunarfólkið heim á leið eftir að hafa tekið daginn snemma.