Framhaldsnámskeið eldvarna

Frá æfingu Slysavarnaskóla sjómanna í apríl 2007.
Frá æfingu Slysavarnaskóla sjómanna í apríl 2007.

STCW A-VI/3

Næstu dagsetningar

  • 16.10.2024 - 18.10.2024
  • Tími: 08:00 - 15:30

Framhaldsnámskeið eldvarna STCW

Námskeiðið hefur að markmiði að fullnægja skilyrðum um öryggisfræðslu til sjómanna til samræmis við ákvæði laga og reglugerðar. Uppbygging og efni námskeiðsins tekur mið af og fullnægir þeim skilyrðum sem sett eru í kafla A-VI/3 og töflu A-VI/3 í STCW-kóðanum2, Evróputilskipun3 og reglugerð4.

Fyrirkomulag

Námskeiðið eru þrír dagar og hefur að markmiði að nemendur fái þekkingu á stjórnun slökkvistarfa um borð í skipum og ýtarlegri þekkingu á bruna og framkvæmd slökkvistarfa. Áður fá nemendur sent lesefni til upprifjunar frá grunnnámskeiði.

Kennsluglærur: Framhaldseldvarnanámskeið (adobe.com)

Skráning

Hægt er að skrá sig á námskeið með því að hringja í síma 5624884 eða senda póst á netfangið saebjorg@landsbjorg.is skrifstofa skólans er opin frá 8-12 og 13-15 alla virka daga.