Endurmenntun á hóp- og neyðarstjórnun (fjarnám)
Námskeiðið hefur að markmiði að fullnægja skilyrðum um öryggisfræðslu til sjómanna til samræmis við ákvæði laga og reglugerðar. Uppbygging og efni námskeiðsins tekur mið af og fullnægir þeim skilyrðum sem sett eru í kafla A-V/2 og töflu A-V/2 í STCW-kóðanum2, Evróputilskipun3 og reglugerð4.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er einn dagur og er kennt gegnum fjarfundarbúnað sem nemandinn fær aðgang að áður en námskeið hefst, nemandinn þarf að vera við tölvu með myndavél og hljóði. Kynntar eru nýjungar sem komið hafa fram í þekkingu á stjórnun farþega á neyðarstundu og upprifjun frá fyrra námskeiði.
Kennsluglærur: Hóp og neyðarstjórnun endurmenntun (adobe.com)
Skráning
Hægt er að skrá sig á námskeið með því að hringja í síma 5624884 eða senda póst á netfangið saebjorg@landsbjorg.is skrifstofa skólans er opin frá 8-12 og 13-15 alla virka daga.