Öryggisfræðsla smábáta

Smábátur á siglingu
Smábátur á siglingu

Næstu dagsetningar

  • 17.09.2024 - 17.09.2024
  • Tími: 08:00 - 15:15

Öryggisfræðsla smábáta

Námskeiðið hefur að markmiði að fullnægja skilyrðum um öryggisfræðslu til sjómanna til samræmis við ákvæði laga og reglugerðar. Uppbygging og efni námskeiðsins tekur mið af og fullnægir þeim skilyrðum sem sett eru af stjórnvöldum.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er einn dagur og er kennt um borð í skólaskipinu Sæbjörg. Markmið með námskeiðinu er að nemendur fái þekkingu á þeim björgunar- og öryggisbúnaði sem í boði er og er lögbundin um borð í bátum upp að 15 metrum og skemmtibátum upp að 24 metrum. Einnig hvernig fyrirbyggja má slys og óhöpp ásamt hvernig á að nota persónulegar varnir og hvernig bregðast á við neyð.

Skráning

Hægt er að skrá sig á námskeið með því að hringja í síma 5624884 eða senda póst á netfangið saebjorg@landsbjorg.is skrifstofa skólans er opin frá 8-12 og 13-15 alla virka daga.