Sjúkrahjálp í skipum (lyfjakista) STCW
Námskeiðið hefur að markmiði að fullnægja skilyrðum um öryggisfræðslu til sjómanna til samræmis við ákvæði laga og reglugerðar. Uppbygging og efni námskeiðsins tekur mið af og fullnægir þeim skilyrðum sem sett eru af Evrópuráðinu2 og sem gerðar eru í kafla A-VI/4 og töflum A-VI/4-1 og 4-2 í STCW-kóðanum3, Evróputilskipun4 og reglugerð5.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er þrír dagar og hefur að markmiði að nemendur fái viðbótar þekkingu í meðferð sjúkra og slasaðra um borð í skipum ásamt fræðslu í meðhöndlun sjúkdóma.
Námskeiðið kostar 148.000 kr. og greiðist eftir að námskeið hefst.
Kennsluglærur: Lyfjakistunámskeið (adobe.com)
Skráning
Hægt er að skrá sig á námskeið með því að hringja í síma 5624884 eða senda póst á netfangið saebjorg@landsbjorg.is skrifstofa skólans er opin frá 8-12 og 13-15 alla virka daga.