Verndarfulltrúi hafnaraðstöðu (fjarnám)

ISPS (PFSO)

Næstu dagsetningar

  • 02.12.2024 - 04.12.2024
  • Tími: 08:15 - 15:15

Verndarfulltrúi hafnaraðstöðu (PFSO)

Námskeiðið hefur að markmiði að fullnægja skilyrðum um fræðslu til verndarfulltrúa hafnaraðstöðu til samræmis við ákvæði laga og reglugerða. Uppbygging og efni námskeiðsins tekur mið af og fullnægir þeim skilyrðum sem sett eru í kafla A/17 ISPS samþykktarinnar og lögum nr. 50/2004 um Siglingavernd.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er þrír dagar og er kennt gegnum fjarfundarbúnað sem nemandinn fær aðgang að áður en námskeið hefst, nemandinn þarf að vera við tölvu með myndavél og hljóði.

Nemendur skulu hafa undirgengist bakgrunnsskoðun hjá lögreglu áður en námskeið hefst og skila þar inn sakavottorði, upplýsingar um fyrirkomulag er sent eftir skráningu á námskeið.

Nemendur gangast undir próf úr námsefninu og fær Samgöngustofa upplýsingar um þá nemendur sem hafa staðist kröfur námskeiðsins.

Skráning

Hægt er að skrá sig á námskeið með því að hringja í síma 5624884 eða senda póst á netfangið saebjorg@landsbjorg.is skrifstofa skólans er opin frá 8-12 og 13-15 alla virka daga.