Bátur losnar frá bryggju á Hofsósi vegna veðurs

21. jan. 2022 - Norðurland eystra

Nokkrar mínútur yfir átta um morguninn var björgunarsveit á Hofsósi kölluð út vegna báts sem hafði losnað frá bryggju í bænum. Vaskur hópur björgunarsveitarmanna var snar í snúningum og kom böndum á bátinn sem hafði losnað að aftan. Hann var bundinn við bryggjuna aftur og var engin leki sjáanlegur. Allir voru komnir aftur til síns heima hálftíma síðar.