Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir manni sem síðast hafði sést til í Elliðaárdal síðdegis. Hann var illa áttaður, mjög klæðalítill, líklega einungis í svörtu ermalausu vesti. Talið var að hann gæti verið í Elliðaárdal eða nærumhverfi. Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út til leitar klukkan 15:15 og lýst var eftir manninum. Kalt var í veðri þennan dag og því mikilvægt að finna manninn áður en kvölda tók með tilheyrandi kulda. Um eitt hundrað björgunarsveitarmenn leituðu á stóru svæði í kringum Elliðaárdal fram eftir degi en maðurinn fannst um klukkan sjö. Hann var kaldur þegar hann fannst, hlúð var að honum og hann fluttur að sjúkrabíl.
Leit að fáklæddum manni í Elliðaárdal

