Slasaður maður við Öxarárfoss

4. jan. 2022 - Suðurland

Féll við ísklifur og er mögulega fótbrotin

Klukkan 20:57 voru björgunarsveitir í Árnessýslu kallaðar út ásamt Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins og sjúkraflutningamönnum frá HSU, vegna slyss á Þingvöllum. Ungur maður slasaðist á fæti eftir fall, en hann var við klifur nálægt Öxará. Mikil hálka var á svæðinu og þurfti því góðan hóp af vel útbúnu fólki til að flytja mannin af vettvangi í sjúkrabíl. Sjúkraflutningamenn frá Suðurlandi og Höfuðborgarsvæðinu komu fyrstir á vettvang og hlúðu að manninum og verkjastilltu.

Björgunarsveitafólk kom stuttu seinna og setti upp búnaði til að tryggja öryggi viðbragðsaðilar þegar bera þurfti manninn af vettvangi enda aðstæður krefjandi og færi erfitt. Maðurinn var komin um borð í sjúkrabíl rétt fyrir klukkan 22, rúmlega 30 manns komu að aðgerðinni í 15 stiga frosti á Þingvöllum.