Fyrsta hjálp fyrir alla

Dagsetning: 18. júní

Tímasetning: 17:00 – 21:00

Staðsetning: Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík

Verð: 16.000 kr.

Fjöldi á námskeiði: 15 manns hámark

Á námskeiðinu er farið í grundvallaratriði er snúa að fyrstu hjálp og endurlífgun. Lögð er áhersla á að kenna þátttakendum hvað ber að hafa í huga þegar komið er að slysi. Hvernig skoða og meta á slasaðan eða veikan einstakling og hvaða skyndihjálp á að beita þar til frekari aðstoð berst. Á námskeiðinu er m.a. farið í aðkomu að slysi, endurlífgun og notkun á hjartastuðtæki, stöðvun blæðinga og fyrstu meðferð við brotum og sárum.

Björgunarskólinn áskilur sér rétt til að fella niður námskeið ef þáttaka verður ekki næg. Þátttakendur þurfa að vera skráð áður en námskeiðið hefst og ekki er tekið við skráningum á staðnum. Ekki er ekki hægt að bæta við fleiri þátttakendum.

Þátttökugjald er ekki endurgreitt ef styttra en þrír dagar eru í námskeið og læknisvottorð liggur ekki fyrir. Eftir að námskeiðið er hafið er þátttökugjaldið ekki endurgreitt.

Allar frekari upplýsingar í síma 570-5900 og á skoli@landsbjorg.is

16.000 kr.