Mikilvægt neyðarkall til þín!

Þú getur keypt eldri neyðarkalla í vefverslun

Vantar þig eldri útgáfur í safnið? Skoðaðu úrvalið í vefverslun okkar.

Tökum vel á móti sjálfboðaliðum næstu daga, svörum neyðarkallinu og stuðlum þannig að eigin öryggi.

Árlegt fjáröflunarátak

Neyðarkall björgunarsveitanna á sér orðið langa sögu að baki þar sem það hófst 2006 og er því um að ræða 18. skipti sem björgunarsveitirnar bjóða almenningi að styðja starf þeirra með því að kaupa Neyðarkall.

Hagnaður af sölunni rennur til björgunarsveita og slysavarnadeilda og er hann notaður til að efla og styrkja starfið. Í gegnum tíðina hefur almenningur haft mikinn skilning á störfum björgunarsveita enda veit fólk að þegar neyðarkall berst bregðast þær hratt við með allan sinn mannskap, búnað, tækni og þekkingu.

Sala á Neyðarkalli fer fram fram 2. til 5. nóvember 2023 og hægt er að nálgast Neyðarkall hjá sjálfboðaliðum okkar í helstu verslunarkjörnum í þínu sveitarfélagi.

Ert þú efni í aðgerðastjórnanda?

Aðgerðastjórnendur hjá björgunarsveitunum eru fólk sem eins og við flest hefur fjölbreyttan bakgrunn, menntun og þekkingu. Svaraðu nokkrum laufléttum spurningum og athugaðu hvort þú býrð yfir þessum eiginleikum.

Höldum áfram að gera allt sem við getum

N64° 9' 13" W-21° 56' 58"

Eftirminnilegasta útkallið mitt

N64° 19' 7" W-22° 4' 51"

Þjálfun björgunarsveitarfólks er mjög mikilvæg

S-8° 57' 28" W-122° 3' 2"

Við verðum að vinna saman til að vera hérna

N65° 3' 20" W-13° 37' 52"

EF VIÐ LENDUM Í VESENI ER ENGUM BJARGAÐ

N64° 39' 20" W-14° 16' 57"

Með hjartað á réttum stað

S-56° 34' 24" W0° 19' 7"

Margir standa að baki hverjum björgunarsveitamanni

N63° 57' 19" W-22° 25' 16"

Brosið sem þú tekur með þér heim

N63° 53' 51" W-20° 2' 3"

Allt sem fólk gerir er betra en ekki neitt

N64° 14' 19" W-21° 49' 40"

Sjálfboðavinna í sumarfríinu

Tuttugu ár eru liðin síðan Anna Filbert gekk til liðs við björgunarsveitina Kjöl á Kjalarnesi